Skíðafélag Ólafsfjarðar

Hér setur þú lýsinguna á vefnum

Fréttir

Skráning hafin í Fjarðargönguna 2020


Nú höfum við opnað fyrir skráningu fyrir Fjarðargönguna sem fram fer á Ólafsfirði 8. febrúar 2020. Lesa meira

Vinnudagar framundan


Nú er starfið okkar að skríða af stað og ætlum við að leggja í smá vinnutörn. Stefnum á að mæta upp í skíðaskála frá kl 17-19, 3.-5. september. Áhersla verður lögð á að laga girðingar og væri frábært að sem flestir láti sjá sig. Lesa meira

SÓ dagurinn


Laugardaginn 31.ágúst héldum við SÓ daginn. 
Um 40 krakkar tóku þátt í deginum ásamt fjölda foreldra sem aðstoðuðu okkur.
Dagurinn hófst með æfingu kl 09:45 með leikjum og ratleik. Að henni lokinni var hádegismatur í skíðaskálanum. Seinni æfingin hófst svo kl 13:00 og var þá farið í áfangaþjálfun og leiki á sparkvellinum. Eftir seinni æfingu var farið í sund og síðan á stórleik KF og Kórdrengja í knattspyrnu.   Lesa meira

Aðalfundur Skíðafélags Ólafsfjarðar

Aðalfundur Skíðafélags Ólafsfjarðar verður haldin föstudaginn 17. maí kl 19:00 í skíðaskálanum Tindaöxl.

Dagskrá fundarinns: Venjuleg aðalfundarstörf.

Félagsmenn hvattir til að mæta.

Stjórnin

Uppskeruhátíð SÓ


Mánudaginn 13.maí munum við ljúka vetrinum í hátíðarsal MTR. Hófið hefst kl. 18:00 og verða veitt verðlaun fyrir félagsmót vetrarins o.fl.

Vonumst við til að sjá sem flesta og fagna góðum vetri með okkur.

Frábært Minningarmót haldið í dag

Hluti þátttakenda og starfsfólks í dag
Í dag, Páskadag, var haldið Minningarmót um tvíburana Nývarð og Frímann frá Burstabrekku. Þeir bræður fórust í bílslysi í Ólafsfjarðarmúla árið 1982 og var fyrsta mótið haldið í minningu þeirra árið 1983. Mótið hefur verið haldið af fjölskyldunni frá Burstabrekku síðan þá, einhver nokkur ár duttu þó út en þetta var í 28.skipti sem mótið er haldið. Jón Konráðsson hefur haldið utan um mótin frá upphafði og eru farandbikarar í öllum flokkum sem hann heldur skrá yfir.  Lesa meira

World Global Calander

Mynd augnabliksins

p1020096.jpg
Skíðafélag Ólafsfjarðar

Deildin

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning