Félagsgjöld
Almennt - miðvikudagur 03.apríl 2019 - Administrator - Lestrar 83

Ef til vill eru margir skráðir félagar sem ekki gera sér grein fyrir því. Til dæmist verða allir krakkar sem æfa með SÓ sjálfkrafa félagar í félaginu. Stjórn hvers tíma hefur ekki heimild til að skrá fólk úr félaginu, það verður hver og einn að gera skriflega.
Við vonum að sjálfsögðu að okkar félagsmenn taki vel í þetta 3.000 kr félagsgjald sem fer auðvitað beint í rekstur félagsins. Greiðsluseðillinn sem var sendur á að detta út 17.júní og ber ekki vexti.
Óski einhverjir eftir því að ganga úr félaginu, þá vinsamlegast sendið okkur beiðni þess efnis á netfangið skiol@simnet.is