Vetrarleikar SÓ og UÍF

Á morgun, miðvikudaginn 10.apríl, verður eitthvað í boði fyrir alla á skíðasvæðinu okkar í Tindaöxl. 

Dagurinn er tileinkaður vetrarleikum UIF og verður skipulögð dagskrá frá kl 17-18:30

Dagskrá fyrir alpagreinar:
Kennsla
Leikjabraut
Stórsvig hjá eldri hóp

Dagskrá fyrir skíðagöngu:
Leikjabraut, æfing fyrir Andrésar Anda leikana 
Þjálfarar á staðnum 
Skicross og skíðaskotfimi

Æfingar og kennsla er opin öllum, svo nú er um að gera að nýta tækifærið. Fullorðnir eru sérstaklega hvattir til að mæta.

Veitingar í skála
Hlökkum til að sjá ykkur